Leita í fréttum mbl.is

Blúshátíð hefst á þriðjudag

Blúshátíð í Reykjavík 2008 hefst á þriðjudag.  Hátíðin fagnar nú fimm ára afmæli sínu. Opnunarhátíð verður á Hilton Reykjavík Nordica kl. 17.  Við það tækifæri verður mikið um dýrðir, því þá verður tilkynnt hver hefur orðið fyrir valinu sem heiðursfélagi Blúsfélags Reykjavíkur í ár, en almenningur og félagar í Blúsfélaginu hafa á undanförnum vikum sent inn tillögur að því hver heiðurinn skuli hljóta.  Heiðursfélaginn verður leystur út með gjöfum og góðum kveðjum. Fyrri heiðursfélagar Blúsfélagsins eru Magnús Eiríksson, Björgvin Gíslason, Andrea Gylfadóttir og KK.   Í ár er spennan mikil, því sjaldan hefur verið jafn óvíst um hver þennan heiður hlýtur.

DeitraChicago2 borgardaetur Deitra Farr og Borgardætur | Það er tilhlökkunarefni að vita af yndislegri stund í Fríkirkjunni í Reykjavík á föstudaginn langa kl 20 með Borgardætrum sem sýna á sér nýja hlið, Deitru Farr ,Tenu Palmer og Riot bandinu. Þeir sem ekki hafa komið áður í kirkjuna vita ekki hverju þeir hafa misst af undanfarin ár.

2008small


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband