Leita í fréttum mbl.is

Gleðilega hátíð!

Blúshátíð í Reykjavík hefst í dag!

blúsdagurinn 014Opnunarhátíðin verður kl. 17 á Hilton Reykjavík Nordica, þar sem Blúsfélag Reykjavíkur heiðrar blúsmann.  Handhafar Blúsmiðans eru velkomnir á þessa stuttu en skemmtilegu athöfn, þar sem stemmningin verður keyrð upp fyrir hátíðina framundan.  Stelpan frábæra, sem blúsbloggið hleraði hjá Sævari Karli á laugardaginn - Margrét Guðrúnardóttir spilar við þetta tækifæri með Bandinu hans pabba.  Hún er efni í blúsmann.  Sá sem verður fyrir valinu, verður leystur út með veglegum tónlistargjöfum sem koma sér vel í blúsmennskunni.

HVER VERÐUR VALINN?

magic slim 010Og svo er það Magic Slim í kvöld.  Hann kom í gær - það var ekki mikið mál að fá hann í viðtal fyrir Ísland í dag.  Var hann flottur eða hvað?  Það verður súrrandi fjör alla vikuna, - Davíð Þór Jónsson ætlar alla vega að spila úr sér hjartað.  Yardbirds eru að lenda, sömuleiðis Deitra Farr og hennar heittelskaði Krister Palais.

Meiri fréttir á blúsblogginu - ekki gleyma að tékka inn hér af og til.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband